|
|||
2016-10-25 18:35:23 CEST 2016-10-25 18:35:23 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : S&P hækkar lánshæfismat Íslandsbanka í BBB/A-2 með jákvæðum horfumAlþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&PGR) hefur hækkað lánshæfismat Íslandsbanka í BBB/A-2 úr BBB-/A-3 með jákvæðum horfum. Hækkun á lánshæfismati bankans byggir að mestu á batnandi rekstrarumhverfi í íslenska bankakerfinu, lækkandi skuldastöðu fyrirtækja og heimila og auknu aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Af þessum sökum hækkar kjölfestueinkunn (e.anchor) fyrir íslenskar fjármálastofnanir um tvö þrep (e.notch) í bbb- úr bb+, sem myndar grunninn að lánshæfismati Íslandsbanka. Jákvæðar horfur á einkunn bankans endurspegla jákvæða þróun í íslensku efnahagslífi og bankakerfinu, og að bankinn viðhaldi öflugum eiginfjárhlutföllum meðan bankinn undirbýr sig fyrir mögulegt söluferli. S&PGR greina ennfremur frá því að eiginfjárstaða Íslandsbanka sé afar sterk. Einkunn bankans fyrir eigið fé og rekstur (e. Capital and earnings) fer því í 'mjög sterk' úr 'sterk' sem hækkar kjölfestueinkunn hans í 'bbb+', sem er tveimur þrepum ofar en bbb- kjölfestueinkunnin. En í ljósi mögulegra breytinga á framtíðareignarhaldi og eiginfjárhlutföllum, kemur til aðlögun um eitt þrep sem leiðir af sér lánshæfismatseinkunnina BBB. Vogunarhlutfall Íslandsbanka er afar gott í alþjóðlegum samanburði og nefnir S&PGR að það geti verið tækifæri fyrir Íslandsbanka að ná fram hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni bankans til undirbúnings fyrir mögulegt söluferli. Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri "Það hefur náðst markverður árangur á síðustu tólf mánuðum, bæði í rekstrarumhverfi bankans og fjármögnun hans. Skuldastaða íslenska ríkisins, fyrirtækja og heimila í landinu hefur stórbatnað á undanförnum árum og lög um skref til afléttingu hafta hafa verið samþykkt. Þá gaf bankinn nýlega út 500 milljón evra skuldabréf sem var mikilvægt skref í átt til þess að vera að fullu fjármagnaður á markaði. Hækkun á lánshæfiseinkunn S&P í BBB/A3 með jákvæðum horfum, er í takt við þá hagstæðu þróun á vaxtaálagi og aukinn áhuga erlendra fjárfesta á skuldabréfum bankans sem við höfum þegar séð á undanförnum mánuðum. Þrátt fyrir afar hátt eigið fé, hefur Íslandsbanki haldið áfram að skila góðri arðsemi sem samhliða skynsamlegri lausafjárstýringu gerir bankann vel í stakk búinn til að takast á við möguleg áhrif vegna afléttingu hafta." Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|