|
|||
![]() |
|||
2016-05-18 11:54:32 CEST 2016-05-18 11:54:32 CEST SÄÄNNELTY TIETO Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2016Kynningarfundur 27. maí 2016 Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2016 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. maí 2016. Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 27. maí 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. |
|||
|