|
|||
![]() |
|||
2016-05-18 13:38:04 CEST 2016-05-18 13:38:04 CEST SÄÄNNELTY TIETO Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður ákveður að ganga til samninga við hæstbjóðendur í Leigufélagið Klett ehf.Eins og tilkynnt var 5. nóvember s.l. ákvað stjórn Íbúðalánasjóðs að setja Leigufélagið Klett ehf. í söluferli sem taki mið af því að hámarka virði eignanna í samræmi við forsendur stofnunar félagsins. Í byrjun maí skilaði söluferlið þremur bindandi kauptilboðum í Leigufélagið Klett ehf. Á fundi sínum í morgun, 18. maí 2016, ákvað stjórn Íbúðalánasjóðs að ganga til samninga við hæstbjóðendur. Gangi þau áform eftir er gert ráð fyrir undirritun samninga 27. maí n.k. |
|||
|