|
|||
2014-09-19 13:45:00 CEST 2014-09-19 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 OG RIKB 31 0124Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 16 1013: Alls bárust 3 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 500 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,250 (5,34% ávöxtunarkröfu). RIKB 31 0124: Alls bárust 30 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.060 m.kr. að nafnverði. 19 tilboðum var tekið fyrir 7.210 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,180 (7,00% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23. september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 24. september 2014. |
|||
|