|
|||
2014-05-08 20:27:00 CEST 2014-05-08 20:28:00 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Samkomulag Landsbankans hf. og LBI um breytingar á skilmálum skuldabréfaLandsbankinn hf. og slitastjórn LBI hf. hafa komist að samkomulagi um breytingar á uppgjörsskuldabréfum sem samið var um í desember 2009, en eftirstöðvar þeirra eru nú að jafnvirði um 226 milljarðar króna. Af hálfu slitastjórnar LBI hf. er gerður fyrirvari um að tilteknar undanþágur fáist í samræmi við lög um gjaldeyrismál. Lokagreiðsla verður innt af hendi í október 2026 í stað október 2018. Endurgreiðslur verða á tveggja ára fresti og dreifast nokkuð jafnt. Landsbankinn hefur heimild til að greiða skuldina að hluta eða að fullu upp án kostnaðar, hvenær sem er á tímabilinu. Vaxtakjör verða óbreytt til október árið 2018, þ.e. 2,9% álag ofan á LIBOR vexti. Eftir það fer vaxtaálagið stighækkandi og verður 3,5% vegna gjalddaga 2020 og að lokum 4,05% vegna lokagjalddagans árið 2026. Hver gjalddagi á tímabilinu frá 2020 til 2026 er að jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans: “Skilmálarnir eru mjög vel viðráðanlegir fyrir Landsbankann og mun þessi breyting auðvelda honum alþjóðlega lánsfjármögnun. Þá felur samkomulagið í sér að sérstökum hömlum á arðgreiðslur hefur verið hrundið úr vegi, til hagsbóta fyrir hluthafa bankans. Samkomulagið er jafnframt mikilvægur þáttur í að leysa úr þeim stóru viðfangsefnum sem tengjast skuldastöðu þjóðarbúsins og afnámi gjaldeyrishafta. Við teljum þennan áfanga því mjög mikilvægan fyrir íslenskt efnahagslíf sem og Landsbankann.” Skuldabréfin voru upphaflega gefin út á grundvelli ákvarðana Fjármálaeftirlitsins samkvæmt ákvæðum neyðarlaganna. Fjárhæðin var ákveðin sem mismunur á virði eigna og skulda sem fluttar voru yfir til Landsbankans. Unnið er að endanlegri skjalagerð. Nánari upplýsingar veitir: Kristján Kristjánsson - pr@landsbankinn.is, 410 4011 & 899 9352 |
|||
|