|
|||
![]() |
|||
2016-02-01 16:54:30 CET 2016-02-01 16:54:30 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 4. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 487.686 eigin hluti fyrir 40.770.550 kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 29.1.2016 10:10 250.000 83,60 20.900.000 12.156.404 -------------------------------------------------------------------------------- 29.1.2016 14:22 237.686 83,60 19.870.550 12.394.090 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 487.686 40.770.550 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 12.394.090 hluti í félaginu sem samsvarar 36,45% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 976.196.877 krónum. Reitir eiga nú samtals 1,64% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|