|
|||
![]() |
|||
2024-02-23 11:29:37 CET 2024-02-23 11:29:37 CET REGULATED INFORMATION Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtgerðarfélag Reykjavíkur hf.: Útgáfa á víxlumÚtgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hélt lokað útboð á víxlum í tveimur flokkum til 3 og 6 mánaða. ÚR hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.120 milljónum í þriggja mánaða víxilinn með 10,10% vöxtum, sem samsvarar 0,30% álagi á 3M Reibor og 880 milljónum í sex mánaða víxilinn á 10,25% vöxtum sem samsvarar 0,42% álagi á 6M Reibor eða samtals 2.000 milljónir. Á gjalddaga, þann 1. mars næstkomandi, eru víxlar að nafnvirði 2.120 milljónir króna. Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna. ![]() |
|||
|