|
|||
2008-02-06 20:20:22 CET 2008-02-06 20:21:23 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA SPRON Verðbréf hf. - Ársskýrsla/ársreikningur- Ársuppjgör 2007Afkoma SPRON hf. árið 2007 Hagnaður samstæðu SPRON 3,3 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 11,5% á ársgrundvelli Helstu niðurstöður ársins 2007: • Hagnaður fyrir skatta var 3,3 milljarðar króna • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 11,5% á árinu • Hreinar rekstrartekjur námu alls 9,2 milljarðar króna • Afkoma grunnrekstrar 4,9 milljarðar króna með 17,1% arðsemi eigin fjár fyrir skatta • Innlán 53% af heildarútlánum SPRON til viðskiptamanna • Innlánaaukning 51% frá 2006 • Niðurstaða efnahagsreiknings var 224,2 milljarðar króna í lok árs 2007 og hafa heildareignir hækkað um 22% frá 2006 • Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 161,6 milljörðum króna í lok árs og hækkuðu um 26% frá árinu 2006 • Eigið fé í lok árs nam 27,8 milljörðum króna • Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok tímabilsins var 13,4%. Eiginfjárþáttur A er 19,9% • Lausafjárstaða sterk - engin stærri lán á gjalddaga fram til september 2009 • Traust útlánasafn - lítil vanskil - 60% útlána eru til einstaklinga og 80% lána með fasteignaveði • Félagið skráð í OMX Nordic Exchange í október 2007 • 19,4% hlutur í Icebank seldur í nóvember 2007 • Skrifstofa opnuð í Berlín Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON: „Afkoma SPRON fyrir árið eru 3,3 milljarðar króna sem er vel viðunandi í ljósi mikilla lækkana á hlutabréfamörkuðum. Grunnrekstur SPRON hefur styrkst á árinu og fara vaxta- og þóknanatekjur hækkandi. Innlán hafa aukist um 51% og fjármagna bæði SPRON sparisjóður og Netbankinn sig alfarið með innlánum en fyrir samstæðuna í heild nema innlán 53% af heildarútlánum til viðskiptavina. Lausafjárstaða félagsins er sterk og aðeins eitt langtímalán er á gjalddaga árið 2008 fyrir um 20 milljónir evra sem hefur þegar verið fjármagnað. Eiginfjárhlutfallið er 13,4% og hefur lækkun á verðmæti hlutar okkar í Exista óveruleg áhrif á eiginfjárgrunn samstæðunnar. Á árinu 2008 er ætlunin að vinna að frekari samþættingu í kjölfar þess vaxtar sem einkennt hefur reksturinn undanfarin ár. Um leið er ætlunin að draga úr kostnaði og hagræða í rekstri. Við erum því mjög vel í stakk búin til þess að mæta þeim erfiðu aðstæðum sem eru nú uppi á fjármálamörkuðum og nýta þau tækifæri sem munu án efa skapast.” |
|||
|