2009-03-31 15:59:06 CEST

2009-03-31 16:00:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Afkoma Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31.
desember 2008 

Stjórn Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. hefur staðfest ársreikning félagsins
fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2008. 

•  Tap Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. eftir skatta á árinu 2008 nam 1.082
   m.kr. samanborið við 1.352 m.kr. fyrir árið 2007. Rekstrarfélag Kaupþings
   banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka hf. og hluti af
   samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

•  Hreinar rekstrartekjur á tímabilinu námu 47 m.kr. samanborið við 3.322 m.kr.
   á árinu 2007.
•  Rekstrargjöld á tímabilinu námu 1.321 m.kr. samanborið við 1.674 m.kr. á
   árinu 2007.
•  Eigið fé 31. desember 2008 nam 1.244 m.kr. skv. efnahagsreikningi miðað við
   4.862 m.kr. 31. desember 2007. Eiginfjárhlutfall, sem reiknað er samkvæmt
   lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 16,6%, en má samkvæmt
   framangreindum lögum ekki vera lægra en 8,0%. 

•  Rekstrarfélagið sér m.a. um eignastýringu og rekstur verðbréfasjóða,
   fjárfestingasjóða og fagfjárfestasjóða. Hlutdeildarskírteini ICEQ
   verðbréfasjóðs og skuldabréf fagfjárfestasjóðanna KB ABS 10 og KB ABS 12 hafa
   verið tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. Sérstakir ársreikningar
   eru gerðir fyrir þá sjóði og þeir birtir sérstaklega í fréttakerfi OMX. 

•  Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. sem telur að ársreikningurinn
   gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2008, fjárhagsstöðu
   þess 31. desember 2008 og breytingu á handbæru fé félagsins og hreinni eign
   sjóðanna á árinu 2008, í samræmi við lög um ársreikninga. 

Hægt verður að nálgast ársreikning félagsins frá og með deginum í dag í móttöku
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir
Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins, í síma 444 6000.