2011-11-25 09:45:28 CET

2011-11-25 09:46:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarðabyggð - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun 2012 og þriggja ára áætlun 2013-2015


Fimmtudaginn 24. nóvember 2011 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar  fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2012 og
þriggja ára áætlun fyrir árin 2013-2015. Þriggja ára áætlun 2013-2015 er sett
fram á föstu verðlagi. Seinni umræða bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2012 og
þriggja ára áætlun 2013-2015 verður þann 1. desember n.k. 

Í A hluta er Aðalsjóður auk eignasjóða. Í B hluta eru veitustofnanir,
hafnarsjóður, félagslegar íbúðir og sorpstöð. Rekstrarafgangur samstæðu A og B
hluta á árinu 2012 fyrir fjármagnsliði nemur 873 m.kr. Þar af er
rekstrarafgangur A hluta 332 m.kr. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er
rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta að fjárhæð 314 m.kr. en rekstrartap
í A hluta að fjárhæð 62 m.kr. Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir
rekstrarafgangi hjá A hluta öll árin. Þá er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur
aukist frá ári til árs bæði hjá A hluta og samstæðu A og  B hluta. 

Eigið fé samstæðu nemur 606 m.kr. í árslok 2012 og eiginfjárhlutfall 5,4%. Í
árslok 2015 er gert ráð fyrir að eigið fé samstæðu nemi 2.174 m.kr. og
eiginfjárhlutfall 19,5%. Í A hluta er eigið fé neikvætt um 687 m.kr. í árslok
2012. Jákvæð afkoma í A hluta í þriggja ára áætlun styrkir eigið fé sem er í
árslok 2015 neikvætt um 244 m.kr. 

Handbært fé frá rekstri í samstæðunni nemur 926 m.kr. á árinu 2012,
fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 330 m.kr. og afborganir
langtímalána 511 m.kr. Handbært fé í samstæðu er 797 m.kr. í árslok 2012 og
eykst um 158 m.kr. frá ársbyrjun. Í þriggja ára áætlun nemur handbært fé frá
rekstri í samstæðu á árunum 2013-2015 samtals 2.747 m.kr. Fjárfestingar í
varanlegum rekstrarfjármunum eru samtals 1.405 m.kr. og afborganir langtímalána
samtals 1.913 m.kr. Tekin ný langtímalán eru samtals áætluð 350 m.kr. á árunum
2013-2015. Þá er handbært fé í árslok 2015 677 m.kr. 

Skuldir og skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er áætlað
220,2% í árslok 2012 og 186,5% í árslok 2015. Sveitarfélagið hefur verið í
góðum samskiptum við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna
skuldastöðu sveitarfélagsins. Framlegðarhlutfall (EBIDTA) er 26,4% í samstæðu
og 16,0% í A-hluta á árinu 2012 og fer vaxandi frá ári til árs í þriggja ára
áætlun. 

Stærstu fjárfestingaverkefni næstu ára eru bygging hjúkrunarheimilis á
Eskifirði, áframhald framkvæmda við snjóflóðavarnarmannvirki á Norðfirði,
framkvæmdir við nýjan leikskóla á Norðfirði auk ýmissa framkvæmda hjá
hafnarsjóði. 



Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin
Guðmundsson bæjarstjóri og Björgvin Valdimarsson fjármálastjóri í síma
470-9000.