2011-01-25 10:29:40 CET

2011-01-25 10:30:44 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Byggðastofnun - Fyrirtækjafréttir

Greinargerð starfshóps um lánastarfsemi Byggðastofnunar



Þann 22. nóvember 2010 skipaði iðnaðarráðherra starfshóp til að fjalla um
lánastarfsemi Byggðastofnunar. Megin tilefni þess að starfshópurinn var
skipaður var að eigið fé Byggðastofnunar var komið undir lögbundið lágmark.
Vegna breyttra aðstæðna á fjármálamörkuðum og þessarar stöðu Byggðastofnunar
var það mat iðnaðarráðherra að rétt væri að kanna hvaða fyrirkomulag hentar
lánastarfsemi stofnunarinnar til frambúðar. Í starfshópinn voru skipuð: Guðrún
Þorleifsdóttir, lögfræðingur í iðnaðarráðuneytinu, formaður, Egill Tryggvason,
viðskiptafræðingur í fjármálaráðuneytinu, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri
Byggðastofnunar og Elín Gróa Karlsdóttir, viðskiptafræðingur hjá Byggðastofnun.
Með hópnum starfaði einnig Magnús Helgason forstöðumaður rekstrarsviðs
Byggðastofnunar. 

Starfshópurinn hefur nú lokið störfum og fer greinargerð hans hér með.