2008-08-29 15:41:14 CEST

2008-08-29 15:56:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

- Afkoma RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2008


Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum.  Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar var tap á
tímabilinu 2.802 milljónir króna en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 782 milljónir króna eða 21,4% af veltu
tímabilsins. Handbært fé frá rekstri var 944 milljónir króna. 

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir 27.238 milljónir króna
heildarskuldir 13.726 milljónum króna en eigið fé var 13.512 milljónir króna og
eiginfjárhlutfall 49,6%. 

Afkoma RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2008 skýrist að verulegu leyti af miklum
fjármagnskostnaði sem stafar af gengisfalli íslensku krónunnar og tapi
Landsnets sem er hlutdeildarfélag RARIK.  Rekstrartekjur hækka um tæp 5% frá
sama tímabili  2007 en rekstrargjöld lækka um  3,5% fá árinu 2007 og er
regluleg starfsemi  fyrirtækisins í samræmi við áætlanir. Gera má ráð fyrir að
rekstrargjöld síðari hluta ársins verði hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna
kostnaðarhækkana í kjölfar aukinnar verðbólgu. 

Unnið er að langtímalántöku vegna fjárfestinga sem  lokið er við m.a. byggingu
síðari áfanga Lagarfossvirkjunar. 

Landsnet sem er hlutdeildarfélag RARIK nýtti sér heimild í alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum um að færa upp varanlega rekstrarfjármuni.  Niðurstaða
þess endurmats er að eigið fé Landsnets hækkar um 6.884 milljónir króna  og
vegna hlutafjáreignar  RARIK er eigið fé RARIK fært upp um 1.550 milljónir
króna vegna  þess. 

Horfur í rekstri RARIK eru góðar og ekki gert ráð fyrir miklum breytingum á
síðari hluta ársins. Afkoma ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af stöðu
gengis krónunnar og verðlagsþróun. 

Árshlutareikningur RARIK fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2008 var
samþykktur á fundi stjórnar þann 29. ágúst 2008. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.