2008-08-29 16:37:25 CEST

2008-08-29 16:38:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2008


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum  þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk
sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni
sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins
flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Í lok júní 2008 námu eftirstöðvar lánsins 364,9 milljónum króna
og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1 - 30/6 2008 nam um 4,7 milljónum
króna og eigið fé í lok júní  2008 nam um 54,9 milljónum króna samkvæmt
árshlutareikningi.  Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við
áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna
fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Guðjón Guðmundsson er framkvædastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.