2010-12-22 16:07:42 CET

2010-12-22 16:08:42 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting - Landsvirkjun kaupir hlut Þingeyjarsveitar í Þeistareykjum - Frétt birt 2010-12-22 15:53:55


Leiðrétting: Ný frétt - Fyrri frétt var send út 29. september 2010

Landsvirkjun og Þingeyjarsveit hafa náð samkomulagi um kaup Landsvirkjunar á
4,0 % hlut Þingeyjarsveitar í einkahlutafélaginu Þeistareykjum ehf. 

Eftir kaupin á Landsvirkjun rúmlega 96,7% hlut í félaginu, Orkuveita Húsavíkur
3,2% og Þingeyjarsveit 0,087%. Kaupverðið eru tæpar 2 milljónir
bandaríkjadollara. 

Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum
jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Félagið hefur fjárfest
umtalsvert í því skyni. Meðal annars hafa verið boraðar sex djúpar
rannsóknarholur frá þremur borteigum, en samtals afkasta holurnar gufu sem
jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að á Þeistareykjum
sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar en jarðhitasvæðið á Þeistareykjum er
talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands. Þeistareykir ehf. munu áfram
stunda rannsóknir á svæðinu og er gert ráð fyrir að félagið fjárfesti í
rannsóknum og öðrum undirbúningsframkvæmdum vegna uppbyggingar raforkuvinnslu
fyrir allt að 720 milljónir króna á árinu 2011. 


         Nánari upplýsingar veita:
         Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar í síma 898 7640 og
         Ragna Sara Jónsdóttir yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar í síma
515-9000 eða 849-2122.