|
|||
2009-03-01 22:01:48 CET 2009-03-01 22:02:45 CET REGULATED INFORMATION Exista hf. - FyrirtækjafréttirTilkynning varðandi skuldbindingar ExistaEins og áður hefur komið fram í tilkynningum Exista til Kauphallar, m.a. frá 17. desember 2008, þá á Exista í viðræðum við innlendar og erlendar fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna. Staða félagsins er óljós af þeim sökum og hyggst Exista leita samninga um frestun á greiðslu vaxta og afborgana á skuldbindingum félagsins sem koma til gjalddaga á meðan á þeim viðræðum stendur. Mun Exista því leita samkomulags við handhafa skráðra skuldabréfa og víxla félagsins um frestun afborgana og vaxtagreiðslna sem koma til gjalddaga á næstunni. |
|||
|