|
|||
2012-01-12 17:46:35 CET 2012-01-12 17:47:37 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSeðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrurtil fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701 Seðlabanki Íslands býðst til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 30 0701. Útboðin tvö eru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011 og einnig skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta frá 18. nóvember 2011. Seðlabankinn býðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í útboðunum tveimur. Útboðsfjárhæðin er háð þeim fyrirvara að hún er sameiginleg báðum útboðum og kann því að taka endanlegt mið af því. Seðlabankinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðina. Tilteknir aðalmiðlarar á skuldabréfamarkaði hafa milligöngu um viðskipti í útboðinu gegn greiðslu í ríkisverðbréfum, en yfirlit um þá má finna á heimasíðu Seðlabankans. Fjármálafyrirtæki sem gert hafa samstarfssamning við Seðlabanka Íslands um milligöngu (upptalning hér að neðan) munu annast framlagningu umsókna um fyrirhugaða þátttöku fjárfesta í útboðinu samkvæmt fjárfestingarleiðinni. Útboðið er opið fjárfestum sem hafa fengið samþykkta umsókn um þátttöku í fjárfestingarleið. Tilboðum skal skilað eigi síðar en 15. febrúar 2012. Nánari lýsingu á framkvæmd útboðanna er að finna í útboðsskilmálum. Markmið þessara aðgerða er að selja krónur fyrir gjaldeyri til aðila sem ákveðið hafa að fjárfesta í íslensku atvinnulífi eða í skuldabréfum ríkissjóðs sem verða í vörslu í 5 ár. Aðgerðin stuðlar þannig að því að fjármagna ríkissjóð á hagkvæman hátt til langs tíma og draga með þeim hætti úr endurfjármögnunarþörf auk þess að laða til landsins erlendan gjaldeyri í langtímafjárfestingar og auðvelda þannig losun gjaldeyrishafta. |
|||
|