2019-11-11 10:50:37 CET

2019-11-11 10:50:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 45. viku 2019 keyptu Hagar hf. 1.335.795 eigin hluti fyrir kr. 58.537.310 eins og hér segir:

Dags. Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð Eigin hlutir eftir viðskipti
4.11.2019 10:20 532.687 42,50 22.639.198 12.518.120
5.11.2019 13:23 269.221 44,50 11.980.335 12.787.341
6.11.2019 13:55 1.200 44,50 53.400 12.788.541
7.11.2019 14:35 532.687 44,80 23.864.378 13.321.228
Samtals 1.335.795 58.537.310

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 4. nóvember 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 31. október 2019.

Hagar hafa keypt samtals 1.335.795 hluti í félaginu sem samsvarar 1,22% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 58.537.310 sem samsvarar 11,71% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,10% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.213.333.841.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 109.347.951 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 500 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 9. júní 2020, eða fram að aðalfundi félagsins 2020, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.