2012-04-12 13:45:00 CEST

2012-04-12 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0716 OG RIKV 12 1015


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0716  og RIKV 12 1015 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 0716:

Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.980 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 850 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,198 (flatir vextir
3,20%). 

RIKV 12 1015:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.850 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 1.250 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,261 (flatir
vextir 3,50%).