|
|||
2014-04-28 20:13:39 CEST 2014-04-28 20:14:39 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirSigurður Ólason nýr framkvæmdastjóri fiskiðnaðarseturs MarelMarel hefur ráðið Sigurð Ólason sem nýjan framkvæmdastjóra fiskiðnaðarseturs frá og með 1. maí 2014. Hann mun taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins og heyra beint undir Árna Odd Þórðarson, forstjóra Marel. Sigurður tekur við starfinu af Jóni Birgi Gunnarssyni sem nú kveður Marel. Marel þakkar Jóni Birgi fyrir góð störf og fyrir hans framlag í þágu félagsins og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Sigurður Ólason er 41 árs og hefur víðtæka alþjóðlega reynslu úr sjávarútvegi. Sigurður er vel kunnugur Marel þar sem hann starfaði hjá félaginu á árunum 2001-2006 í vöruþróun. Undanfarin sex ár hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja og tengdum félögum. Sigurður er með MBA gráðu frá Brisbane Graduate School of Business og B.Sc gráðu í bæði tölvunarfræði og véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Marel óskar Sigurði velfarnaðar í nýju starfi og býður hann hjartanlega velkominn aftur til Marel. |
|||
|