2012-04-12 20:00:00 CEST

2012-04-12 20:00:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Ársreikningur

Ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2011


Ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2011 var lagður fram í bæjarráði í dag
og honum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn. 



Hagnaður þrátt fyrir háa fjármagnsliði

Rekstur Reykjanesbæjar gekk vel á árinu 2011 og var rekstrarafgangur fyrir
fjármagnsliði 1.345 milljónir króna sem er um 15,21% af tekjum. Rekstrartekjur
voru 8,8 milljarðar króna en rekstrargjöld 7,2 milljarðar króna. Afskriftir
voru 291 milljón króna. 

Vextir og verðbætur langtímalána nema 892 milljónum króna en gengismunur
langtímalána er reiknaður neikvæður um 788 milljónir króna. Sveitarfélagið
greiðir fjármagnstekjuskatt til ríkisins upp á 290 milljónir króna. 

Þrátt fyrir þessa háu fjármagnsliði skilar bæjarsjóður jákvæðri
rekstrarniðurstöðu upp á 33,3 milljónir króna sem er um 0,38% af tekjum. 

Hreint veltufé frá rekstri er um 945 milljónir króna sem er 10,7% af tekjum og
handbært fé  frá rekstri er 57,8 milljónir króna. 

Eiginfjárhlutfall bæjarsjóðs hækkar á milli ára úr 19,07 í  20,76%.



Taprekstur á hafnarmannvirkjum

Í samstæðunni er hreint veltufé frá rekstri 1,9 milljarður kr. og handbært fé
frá rekstri rúmlega 1,3 milljarður kr. 

Taprekstur er á  Reykjaneshöfn, sem m.a. rekur Helguvíkurhöfn, um 558 milljónir
króna. Þar er um að ræða mikinn fjármagnskostnað vegna framkvæmda. Enn hefur
ekki fengist stuðningur ríkisins við framkvæmdir í Helguvík sem ætti að nema um
1,2 milljörðum króna, þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar um og skýr fordæmi um
stuðning ríkisins til annarra stórskipahafna. Vonast er til að það breytist á
næsta ári. Þá er taprekstur á félagslegum íbúðum bæjarins (Fasteignir
Reykjanesbæjar) um 173 milljónir króna. 

Samstæðureikningur Reykjanesbæjar skilar tæplega 2,5 milljarða króna hagnaði
fyrir fjármagnsliði en að teknu tilliti til þeirra er hann neikvæður um tæplega
654 milljónir krónur. 

Eiginfjárhlutfall samantekins reiknings er 16,41%.



Skuldahlutfall lækkar hratt

Skuldahlutfall bæjarsjóðs, sem mælir heildarskuldir á móti rekstrartekjum
ársins, að teknu tilliti til peningalegra eigna, hefur lækkað úr 275% árið 2008
í 207% árið 2011. Skuldahlutfall samstæðunnar (Bæjarsjóðs og fyrirtækja) hefur
á sama tíma lækkað úr 310% í 230%. Bæjarsjóður skuldar aðeins eitt erlent lán
að upphæð 1,4 milljarða króna. Stærstur hluti skulda eru framreiknaðar skuldir
vegna leigu á fasteignum, sem greitt er af mánaðarlega, en í reikningi er það
framreiknað út leigutíma í 22 ár.