2011-03-25 17:54:26 CET

2011-09-16 12:26:39 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar 8. apríl 2011


DAGSKRÁ

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2010.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2010.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  7. Tillaga um breytingar á samþykktum.
  8. Önnur mál. 



Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 8. apríl 2011 samþykkir að greiddur verði
arður til hluthafa að upphæð kr. 74.488.958, sem er 1,3% af eigin fé
Hampiðjunnar hf. í árslok. Arðurinn verði greiddur í viku 18. Síðasti
viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 8. apríl, þ.e. viðskipti sem
fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 13.
apríl. Arðleysisdagurinn er 11. apríl. 

Tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður fái
þrefaldan hlut. 

Tillaga stjórnar um endurskoðunarfélag

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.

Tillaga stjórnar um kaup á eigin hlutum

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 8. apríl 2011 veitir stjórn félagsins
heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði
og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé
félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekkta
söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð. 

Tillaga um breytingar á samþykktum

Núverandi:


                                      2.gr.

Heimilisfang félagsins er Flatahraun 3, Hafnarfirði.

Tillaga:


                                      2.gr.

Heimilisfang félagsins er Skarfagarðar 4, Reykjavík.

Núverandi:


                                      8.gr.

Hluthafafundur er lögmætur, ef til hans hefur verið boðað á þann hátt, sem
samþykktir þessar og lög mæla fyrir um. 

Til hluthafafundar skal félagsstjórnin boða með auglýsingu í útbreiddum
fjölmiðlum. Skal fundur boðaður með minnst viku fyrirvara en lengst fjögurra
vikna fyrirvara. Í fundarboði skal greina málefni þau, sem taka á til meðferðar
á hluthafafundi. 

Tillaga:


                                      8.gr.

Hluthafafundur er lögmætur, ef til hans hefur verið boðað á þann hátt, sem
samþykktir þessar og lög mæla fyrir um. 

Til hluthafafundar skal félagsstjórnin boða með auglýsingu í útbreiddum
fjölmiðlum. Skal fundur boðaður með minnst viku fyrirvara en lengst fjögurra
vikna fyrirvara, aðalfund skal þó boða með minnst tveggja vikna fyrirvara. Í
fundarboði skal greina málefni þau, sem taka á til meðferðar á hluthafafundi. 

Núverandi:


                                      9.gr.

Aðalfund skal halda fyrir lok júnímánaðar ár hvert. Hluthafafund skal halda,
þegar félagsstjórn telur þess þörf. Þá skal boða til hluthafafundar innan
tveggja vikna, ef endurskoðandi eða hluthafar, sem ráða yfir minnst 1/10
hlutafjársins, krefjast þess skriflega og greina frá fundarefni. 

Tillaga:


                                      9.gr.

Aðalfund skal halda fyrir lok júnímánaðar ár hvert. Hluthafafund skal halda,
þegar félagsstjórn telur þess þörf. Þá skal boða til hluthafafundar innan
tveggja vikna, ef endurskoðandi eða hluthafar, sem ráða yfir minnst 1/20
hlutafjárins, krefjast þess skriflega og greina frá fundarefni. 

Núverandi:


                                     10.gr.

Sérhver hluthafi á rétt á því að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á
hluthafafundi, ef hann gerir skriflega kröfu um það til félagsstjórnar með það
miklum fyrirvara, að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. 

Viku fyrir hluthafafund hið skemmsta skal dagskrá, endanlegar tillögur, svo og
ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðanda, sé um aðalfund að
ræða, lögð fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins. 

Tillaga:


                                     10.gr.

Sérhver hluthafi á rétt á því að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á
hluthafafundi, ef hann gerir skriflega kröfu um það til félagsstjórnar með það
miklum fyrirvara, að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. 

Viku fyrir hluthafafund, en tveimur vikum fyrir aðalfund, hið skemmsta skal
dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla
endurskoðanda, sé um aðalfund að ræða, lögð fram hluthöfum til sýnis á
skrifstofu félagsins. 

Núverandi:


                                     15.gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum. Formanni, sem hluthafafundur kýs
sérstaklega, og fjórum meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir til eins árs í senn,
en þá má endurkjósa. 

Tillaga:


                                     15.gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum. Formanni, sem hluthafafundur kýs
sérstaklega, og fjórum meðstjórnendum. Skulu þeir kosnir til setu í stjórn fram
að næsta aðalfundi. 

Tilkynna skal skriflega, skemmst fimm dögum fyrir hluthafafund, þar sem kjósa á
félagsstjórn, um framboð til stjórnar og stjórnarformanns. 

Í tilkynningu um framboð skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og
heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu
og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga
meira en 10% hlut í félaginu. 

Starfsmenn, stjórnendur og hluthafar samkeppnisaðila, og félaga sem eru tengd
samkeppnisaðila, sbr. lög um ársreikninga, mega ekki setjast í stjórn
félagsins. Sama á við um einstaklinga sem eru nákomnir fyrrgreindum aðilum. 

Félagsstjórn skal fara yfir framboðstilkynningar og úrskurðar um það hvort
aðili uppfylli skilyrði til framboðs og hæfi. Við úrlausn um skilyrði og hæfi
til stjórnarsetu getur stjórnin krafið frambjóðanda um frekari upplýsingar og
gögn, hvort sem er til að bæta úr göllum á framboði eða til skýringa á hæfi.
Niðurstaða um gildi framboðs skal liggja fyrir eigi síðar en tveimur dögum
fyrir hluthafafund. 

Unnt er að skjóta niðurstöðu félagsstjórnar um að hafna framboði, vegna
formgalla eða vegna vanhæfis, til hluthafafundar sem fer með endanlegt
úrskurðarvald um gildi framboðs. 

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar hlutafélags skulu lagðar fram
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir
hluthafafund.