2009-11-12 18:30:03 CET

2009-11-12 18:31:56 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: röng dagsetning í fyrri tilkynningu - Nýr samningur um viðskiptavakt við Saga Capital



Fréttatilkynning frá Össuri hf.
                                         12. nóvember 2009, GMT:17:00






           Nýr samningur um viðskiptavakt við Saga Capital


Össur hf. hefur gert nýjan samning við Saga Capital Fjárfestingabanka
hf. um viðskiptavakt  sem er  endurnýjun á fyrri  samningi frá  apríl
2008. Þessi  samningur  er  einungis  vegna  skráningar  félagsins  á
Íslandi.

Samkvæmt samningnum  mun Saga  Capital sjá  um markaðsvakt  á  bréfum
félagsins á NASDAQ OMX á Íslandi.  Saga Capital mun setja fram  kaup-
og sölutilboð  alla  viðskiptadaga  í  viðskiptakerfi  NASDAQ  OMX  á
Íslandi. Upphæð hvers tilboðs skal  að lágmarki vera 20.000 hlutir  á
gengi sem Saga  Capital ákveður  í hvert  skipti. Hámarksmunur  milli
kaup- og söluverðs  má ekki fara  yfir 2,0% og  breyting frá  síðasta
verði skal ekki vera  meira en 3,5%. Saga  Capital ber skyldu til  að
bjóða allt að 100.000 hluti á hverjum viðskiptadegi.

Samningnum er  ætlað  að  auka  viðskipti  með  hlutabréf  Össurar  í
kauphöll NASDAQ OMX á  Íslandi og stuðla  að skilvirkri og  gegnsærri
verðmyndun á hlutabréfum félagsins.

Nánari upplýsingar veita:
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, sími 515 1300
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664 1044