2015-10-15 12:56:33 CEST

2015-10-15 12:57:33 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

FJármál Reykjaneshafnar


Í tilkynningu Reykjaneshafnar þann 8. október sl. var þess getið að til
greiðslufalls kæmi, að öllu óbreyttu, á skuldbindingum hafnarinnar sem á
gjalddaga væru þann 15. október sl., sem og að leitað yrði til fjárhagslegra
kröfuhafa um að veita greiðslufrest og kyrrstöðutímabil til og með 30. nóvember
nk. Var jafnframt boðað til fundar kröfuhafa sem haldinn var þann 14. október
sl. 

Í framhaldi fundarins hafa nú allir þekktir kröfuhafar skuldbindinga sem falla
í gjalddaga í dag 15. október samþykkt að veita framangreindan greiðslufrest og
kyrrstöðutímabil til og með 30. nóvember nk. 

Í framhaldinu verður enn fremur skipað kröfuhafaráð sem mun koma að viðræðum um
fjárhagslega endurskipulagningu fjármála Reykjaneshafnar.