|
|||
2011-10-28 19:11:55 CEST 2011-10-28 19:12:56 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNýherji hf gerir samning um viðskiptavakt við LandsbankannNýherji hf (NYHR) hefur gert samning við Landsbankann hf um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn tekur gildi frá og með 31. október 2011 og gildir til og með 31. október 2012 en er en uppsegjanlegur af hálfu Landsbankans með eins mánaðar fyrirvara. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf NYHR í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé NYHR, að lágmarki kr. 200.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 5,0%. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Breytist verð NYHR innan dagsins um meira en 10% er Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem eftir er dagsins. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 10.000.000,- að markaðsvirði. |
|||
|