|
|||
2010-02-04 21:19:45 CET 2010-02-04 21:20:47 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Marel Food Systems hf. - ÁrsreikningurMarel kynnir afkomu ársins 2009Nýtt ár markar nýtt upphaf hjá Marel - Tekjur af kjarnastarfsemi árið 2009 námu 434,8 milljónum evra og jukust jafnt og þétt á árinu. Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu. - Marel hélt áfram að styrkja samkeppnisstöðu sína á árinu með því að einbeita sér að samþættingu samstæðunnar og verulegum niðurskurði í útgjöldum, sem lækkaði kostnaðargrunn rekstursins um 25 milljónir evra. - Nettó vaxtaberandi skuldir hafa lækkað í 295 milljónir evra (2008: 379 milljónir evra) vegna sterks sjóðstreymis, velheppnaðra hlutafjárútboða og sölu eininga utan kjarnastarfsemi. - Til að viðhalda tæknilegu forskoti sínu leggur Marel áfram ríka áherslu á rannsóknar- og þróunarstarf. - Pantanabók styrktist eftir því sem leið á árið og er nú traustari og mun betri en fyrir ári síðan, sem mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu. - Skerpt hefur verið á stefnu félagsins með sölu eininga utan kjarnastarfsemi. Marel skilað traustri afkomu og sterku sjóðstreymi frá kjarnastarfsemi þrátt fyrir aðgerðir sem hafa leitt til einskiptiskostnaðar á árinu, en jafnframt lækkað kostnaðargrunn félagsins varanlega. Tekjur af kjarnastarfsemi árið 2009 námu 434,8 milljónum evra (2008: 548,1 milljónir evra). Rekstrarhagnaður (EBIT) var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu (2008: 38,2 milljónir evra; 7,0% af veltu), og EBITDA var 47,4 milljónir evra, sem er 10,9% af veltu (2008: 60,0 milljónir evra; 11,0% af veltu). Niðurfærsla á bókfærðu verði eigna til sölu (Stork Food & Dairy Systems og Carnitech A/S) var að fjárhæð 24,5 milljónir evra vegna. Heildartekjur ársins 2009 námu 531,7 milljónum evra (2008: 540,1 milljónum evra) og tap eftir skatta var 11,8 milljónir evra (2008: 8,4 milljóna evra tap). Efnahagsreikningur Marel í upphafi árs 2010 er sterkur; nettó skuldir nema 295 milljónum evra samanborið við 379 milljónir evra í upphafi árs 2009. Sjóðstreymi frá rekstri fyrir vexti og skatta nam 75 milljónum evra fyrir árið 2009 og nýtt hlutafé nam 49 milljónum evra. Þar að auki hefur dregið úr vaxtakostnaði og gengisáhættu með lækkun skulda í íslenskri krónu, sem og myntbreytingu á láni úr íslenskri krónu yfir í evru (að upphæð 66 milljónum evra), sem er megintekjumynt félagsins. Pantanabók Marel er traust í upphafi árs 2010 og mun betri en í upphafi árs 2009. Það er aukin markaðsvirkni á öllum sviðum og fjöldi fyrirspurna eykst, einnig varðandi stærri verkefni. Theo Hoen, forstjóri: “Ár umbreytinga og niðurskurðar er að baki. Ég tel að fyrirtækið standa mun betur en það gerði fyrir ári. Við höfum náð góðum árangri í að skerpa á stefnu fyrirtækisins. Sameiningu Marel og Stork miðaði vel á seinni hluta árs. Jákvæðu áhrifin af sparnaði og kross-sölu verða veruleg og munu koma betur fram þegar líður á árið 2010. Arðsemi og sjóðstreymi hafa batnað. Við stöndum sterkari eftir að lækkað kostnaðargrunn fyrirtækisins án þess að draga úr fjárfestingu í rannsóknar- og þróunarvinnu. Auk þess hefur skuldsetning minnkað. Pantanabókin er að styrkjast og stærri pantanir farnar að berast. Það er til marks um aukna trú á mörkuðum okkar. Við sjáum að árið 2010 fer mun betur af stað en síðasta ár gerði. ‚Nýja‘ Marel er farið að starfa sem ein heild og stefna okkar er skýr. Og við sýndum á nýliðnu ári að við erum fær um að bregðast við breyttum markaðsaðstæðum, þökk sé því dygga starfsfólki sem við höfum á að skipa. Þess vegna hef ég mikla trú á framtíð fyrirtækisins og að við munum ná langtíma markmiðum okkar.“ Afkoma fjórða ársfjórðungs 2009 Skerpt á stefnu fyrirtækisins og hlutafé aukið - Tekjur af kjarnastarfsemi á fjórða ársfjórðungi námu samtals 112,5 milljónum evra [Q4 2008: 121,4 milljónir evra]. - EBITDA af kjarnastarfsemi var 12,8 milljónir evra, sem er 11,3% af veltu [Q4 2008: 0,7 milljónir evra; 0,6% af veltu]. - Rekstrarhagnaður (EBIT) af kjarnastarfsemi var 6,9 milljónir evra, sem er 6,2% af veltu [Q4 2008: (5.7) milljónir evra; -4,7% af veltu]. - Verulega hefur dregið úr fjárhagslegri áhættu með útgáfu nýs hlutafjár upp á 41 milljónir evra og myntbreytingu á láni úr íslenskri krónu (að upphæð 66 milljónum evra) í evru. Um 32 milljónir evra úr hlutafjárútboðinu fóru í að greiða niður skuldabréf í íslenskri krónu. - Sameiningaráform eru komin til framkvæmda; innleiðing á nýjum vörumerkjum og sameining dreifikerfa er hafin og verið er að þróa vörur sem sameina þá tækni sem rekstrareiningarnar búa yfir. Heildarafkoma - Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi 2008 námu 135,7 milljónum evra [Q4 2008: 150,5 milljónir evra]. - Heildar EBITDA var 12,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2009 [Q4 2008: (0.1) milljónir evra] og heildarrekstrarhagnaður (EBIT) var (19,6) milljónir evra [Q4 2008: (7,4) milljónir evra]. - Tap eftir skatta var 23,0 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2009 [Q4 2008: 23,7 milljónir evra tap), vegna niðurfærslu á bókfærðu verði eigna til sölu utan kjarnastarfsemi. - Food & Dairy Systems, eining utan kjarnastarfsemi Marel, var seld í janúar 2010. Bókfært verð eignanna var fært niður sem veldur tapi upp á 16,4 milljónir evra. Tekið hefur verið tillit til þess í ársreikningum 2009. - Carnitech A/S, eining utan kjarnastarfsemi Marel, er í söluferli. Bókfært verð eignanna hefur verið fært niður sem veldur tapi upp á 8 milljónir evra. Tekið hefur verið tillit til þess í ársreikningum 2009. - Nettó vaxtaberandi skuldir námu 295 milljónum evra [2008: 379 milljónir evra]. Kynningarfundur 5. febrúar 2010 Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins föstudaginn 5. febrúar 2009 kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabær. Birtingardagar fyrir reikningsárið 2009 og aðalfundur 2010 Birtingardagar fyrir reikningsárið 2010: - Aðalfundur Marel Food Systems hf 3. mars 2010 - 1. ársfjórðungur 2010 28. apríl 2010 - 2. ársfjórðungur 2010 28. júlí 2010 - 3. ársfjórðungur 2010 27. október 2010 - 4. ársfjórðungur 2010 2. febrúar 2011 - Aðalfundur Marel Food Systems hf 2. mars 2011 Frekari upplýsingar veita: Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563-8072 Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf. Sími: 563-8072 Um Marel Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60 umboðsmanna og dreifingaraðila. |
|||
|