|
|||
2015-08-13 12:47:01 CEST 2015-08-13 12:48:02 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Landsnet hf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2015Hagnaður tímabilsins nam 1.573 milljónum króna Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.573 mkr. fyrstu 6 mánuði ársins 2015 samanborið við hagnað að fjárhæð 1.231 mkr. fyrir sama tímabil árið 2014. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 5.239 mkr. samanborið 4.446 mkr. á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 793 mkr. á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.863 mkr. á tímabilinu en voru 1.565 mkr. á sama tímabili ársins 2014. Hrein fjármagnsgjöld hækka því um 298 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2015 í samanburði við sama tímabil 2014. Eiginfjárhlutfall í lok júní var 26,9% samanborið við 23,5% í lok ársins 2014. Eigið fé í lok tímabilsins nam 20.782 mkr. samanborið við 19.208 mkr. í lok árs 2014. Heildareignir félagsins í lok júní námu 77.138 mkr. samanborið við 81.859 mkr. í lok árs 2014. Heildarskuldir námu 56.356 mkr. samanborið við 62.651 mkr. í lok árs 2014. Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 7.335 mkr. Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 3.300 mkr. Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 13. ágúst 2015. Frekari upplýsingar veitir: Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is |
|||
|