|
|||
2009-11-20 16:45:00 CET 2009-12-07 11:03:10 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 14:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 11 0722: Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.900 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.300 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,92 (7,35% ávöxtunarkröfu). RIKB 25 0612: Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 22.117 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 12.847 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,65 (8,15% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. nóvember 2009. |
|||
|