2008-10-21 17:18:40 CEST

2008-10-21 17:19:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Um stöðu Straums



Með hliðsjón af nýliðnum atburðum á Íslandi vill Straumur-Burðarás
fjárfestingabanki hf. (Straumur) koma eftirfarandi upplýsingum um
stöðu bankans á framfæri:

Eiginfjárhlutfall Straums (CAD) er í dag yfir 20%, en lögbundið
lágmark er 8%. Bankinn heldur þétt utan um lausafjárstöðu sína og er
sem fyrr í skilum með allar skuldbindingar.

Nettóstaða Straums gagnvart Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf.
og Kaupþingi banka hf. hvað varðar afleiðuviðskipti og lánasamninga
var jákvæð.

Seðlabanki Íslands tilkynnti Straumi þann 20. október 2008 að hann
myndi þann 22. október 2008 auka frádrag á óvörðum verðbréfum
útgefnum af ofangreindu bönkunum þremur, sem lögð hafa verið fram til
tryggingar í viðskiptum við Seðlabankann, í 50 af hundraði. Vegna
þessa hefur Straumur lagt fram viðbótarveð hjá Seðlabankanum að
fjárhæð um það bil 18,3 milljarðar króna sem Seðlabankinn hefur
samþykkt í dag.

William Fall, forstjóri Straums:"Stefnan sem við höfum framfylgt undanfarið hálft annað ár eða svo
hefur gert okkur kleift að komast í gegnum þetta erfiða tímabil. Við
höfum minnkað efnahagsreikninginn og lagt aukna áherslu á
þóknunartekjur, sem þýðir meðal annars að fjármögnunarþörf okkar er
minni en ella hefði verið. Í öðru lagi höfum við sótt fram á erlendum
vettvangi og þannig dregið úr hlutfallslegu vægi Íslands í
starfseminni. Til marks um það var tveimur þriðju hlutu tekna okkar á
fyrri helmingi þessa árs aflað utan Íslands. Markaðsaðstæður eru enn
óhagstæðar bankastarfsemi almennt en óvenjulega hátt
eiginfjárhlutfall og tiltölulega lítil endurfjármögnunarþörf koma
okkur til góða."

Nánari upplýsingar veita:
Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi
Sími: 858 6778
Netfang: olafur.gudnason@straumur.net

Georg Andersen
Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs
Sími: 858 6707
Netfang: georg.andersen@straumur.net