|
|||
2015-03-04 16:57:48 CET 2015-03-04 16:58:49 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. gefur út áhættuskýrslu fyrir 2014Landsbankinn hefur gefið út áhættuskýrslu fyrir árið 2014. Í henni er gerð ítarleg grein fyrir öllum þáttum áhættustýringar bankans og þeim aðferðum sem hann beitir við mat á áhættu. Með áhættuskýrslunni fæst enn gleggri mynd af stöðu bankans en áður. Skýrslunni er m.a. ætlað að veita upplýsingar um áhættu- og eiginfjárstýringu bankans, samsetningu eiginfjár og aðra mikilsverða þætti á þessu sviði. Þetta er í þriðja sinn sem Landsbankinn hefur gefið út sérstaka áhættuskýrslu en áður hefur verið fjallað ítarlega um áhættustýringu í ársskýrslum bankans. Skýrslan er á ensku og ber nafnið Risk and Capital Management 2014, Pillar III risk report of Landsbankinn hf. Nánari upplýsingar veita: Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014 Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011 |
|||
|