|
|||
![]() |
|||
2015-03-04 20:53:57 CET 2015-03-04 20:54:58 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirHelstu niðurstöður Aðalfundar MarelAðalfundur Marel var haldinn í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ 4. mars 2015. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Ávarp stjórnarformanns Ásthildur Margrét Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel talaði um þá kraftmiklu hvata sem eru undirliggjandi í rekstrarumhverfi Marel í erindi sínu. Fólksfjölgun, þéttbýlisvæðing og sjálfbærni eru meðal þeirra alþjóðlegu hvata sem munu í framtíðinni drífa áfram hagvöxt sem og þróun og framgang í þeim iðnaði sem Marel starfar í. Ásthildur tók einnig saman rekstrarniðurstöðu Marel og áfanga sem náðust á árinu 2014. Þá gaf hún einnig innsýn inn í stjórnskipulag félagsins og stjórnarhætti. Stjórnarformaðurinn talaði fyrir þeirri tillögu stjórnar að greiða arð fyrir árið 2014 sem nemur 30% af hagnaði ársins. “Stjórn Marel er ánægð með að leggja til heildararðgreiðslu til hluthafa sem nemur €3,5 milljónum. Þetta er til samræmis við arðgreiðslustefnu félagsins og endurspeglar okkar sterku trú á að þau skref sem tekin hafa verið í áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel muni skila árangri og getu félagsins til að skapa verðmæti til framtíðar. Í erindi sínu leit Ásthildur einnig til framtíðar og sagði við það tilefni: „Sterk staða Marel sem markaðsleiðtoga byggir á því að við leggjum ávalt áherslu á nýsköpun, jafnvel á krefjandi tímum. Þetta hefur skilað sér í stöðugum straumi nýrra lausna sem hafa umbylt matvælaframleiðslu á heimsvísu. Lykilinn að árangri er samstarf við viðskiptavini okkar.” Ávarp forstjóra “Árið 2014 var ár framfara og breytinga hjá Marel. Árið fór rólega af stað en með vorinu varð sjáanlegur viðsnúningur. Með markvissri markaðssókn og meðbyr á mörkuðum náði Marel að tryggja metsölu og pantanastöðu á seinni hluta ársins og rekstrarafkoman batnaði eftir því sem leið á árið,” sagði Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel í erindi sínu á Aðalfundi Marel. Árni talaði einnig um þann árangur sem hefur náðst í áætlun um einfaldara og skilvirkara Marel (e.simpler,smarter,faster). „Hagræðing rekstrar er á áætlun og samhliða erum við einnig að fjárfesta í vexti til framtíðar í gegnum nýsköpun og fjárfestingu í innviðum sem munu styðja við félagið til framtíðar.Við erum bjartsýn í upphafi árs með sterkari pantanabók en fyrir ári síðan og meðbyr á okkar helstu mörkuðum.” Ársreikningur samþykktur Fundurinn samþykkti samhljóða ársreikning og skýrslu stjórnar og forstjóra fyrir árið 2014. Allar tillögur sem lágu fyrir fundinum voru samþykktar samhljóða. Stjórn Marel var endurkjörin og hana skipa: Ástvaldur Jóhannsson, Ólafur Guðmundsson , Arnar Þór Másson, Ásthildur Margrét Otharsdottir, Ann Elizabeth Savage, Helgi Magnússon og Margrét Jónsdottir. Ný stjórn Marel hefur komið saman og skipt með sér verkum. Ásthildur Margrét Otharsdóttir verður áfram stjórnarformaður og Arnar Þór Másson er varaformaður stjórnarinnar Frekari upplýsingar um Aðalfundinn og niðurstöður hans eru aðgengilegar á Marel.com og á upplýsingasíðu aðalfundar 2015 http://www.marel.com/agm. Myndbandsupptaka af fundinum verður aðgengileg fljótlega á upplýsingasíðu aðalfundar. |
|||
|