|
|||
2013-10-09 19:35:41 CEST 2013-10-09 19:36:41 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirFjármögnun kaupa á höfuðstöðvum Orkuveitunnar lokiðReykjavík, 2013-10-09 19:35 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Fjármögnun kaupa á höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur, sem var í umsjá Straums fjárfestingabanka, er lokið. Með sölu á fasteigninni eru allir þættir Plans Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins komnir á áætlun. Lokið verður við fullnaðarfrágang skjala tengdum sölu og leigu á húsnæðinu á næstu vikum. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti snemma árs kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1 og Réttarhálsi 1 í Reykjavík. Sala þeirra er mikilvægur þáttur í framvindu Plansins, aðgerðaáætlunar Orkuveitunnar og eigenda, með því að lausafjárstaða fyrirtækisins batnar sem söluandvirðinu nemur. Söluverðið er 5,1 milljarður króna. Straumur fjárfestingabanki gerði kauptilboðið fyrir hönd óstofnaðs félags, með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlega fjármögnun. Nú er hvoru tveggja lokið. Orkuveitan mun leigja húseignirnar til 20 ára og hafa rétt til að kaupa þær aftur eftir 10 ár eða við lok leigutímans. Bjarni Bjarnason forstjóri: Það hefur farið fram hjá fáum að starfsfólk Orkuveitunnar vinnur eftir ákaflega metnaðarfullri áætlun í rekstrinum, Planinu. Allir þættir þess, nema eignasalan, hafa verið á áætlun frá upphafi og flestir gott betur. Með sölu höfuðstöðvanna er eignasalan líka komin á áætlun. Samningurinn er Orkuveitunni fjárhagslega hagstæður, lausafjárstaðan styrkist og það dregur úr áhættu í rekstrinum. Það er líka mikilvægt að fyrirtækið eigi þess kost að kaupa eignina aftur þyki það skynsamlegt þegar þar að kemur. Nánari upplýsingar veitir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar. Sími 516 7707. |
|||
|