2011-05-17 15:59:53 CEST

2011-05-17 16:00:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Matsfyrirtækið Standard og Poor's birtir nýtt lánshæfismat


Matsfyrirtækið  Standard og Poor's staðfestir óbreytta lánshæfiseinkunn fyrir
skuldbindingar ríkissjóðs í erlendum gjaldeyri í ljósi stuðnings Norðurlanda.
Lánshæfiseinkunn fyrir innlendar skuldbindingar er lækkuð í BBB- / A-3. Horfur
eru áfram neikvæðar. 




Matsfyrirtækið Standard & Poor´s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn
fyrir skuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í erlendum gjaldeyri. Einkunn fyrir
innlendar skuldbindingar var lækkuð í BBB-/A-3. Samkvæmt fréttatilkynningu
fyrirtækisins eru matshorfur áfram neikvæðar, en einkunnir ríkissjóðs hafa nú
verið teknar af athugunarlista. 

Hér fara á eftir nokkur atriði úr tilkynningu frá Standard og Poor‘s í 
lauslegri þýðingu: 


• Að mati fyrirtækisins hefur dregið úr hættu á að Ríkissjóður Íslands lendi í
vandræðum vegna erlendrar lánsfjármögnunar.Af þeim sökum hefur Standard og
Poor‘s  ákveðið að staðfesta BBB-/A-3 einkunn ríkissjóðs. 

• Að mati fyrirtækisins hefði ríkissjóður minna svigrúm til fjármögnunar
innanlands ef gjaldeyrishafta nyti ekki við. 

• Standard og Poor‘s  hefur ákveðið að lækka einkunn ríkissjóðs fyrir innlendar
skuldbindingar í BBB- úr BBB. 

• Fyrirtækið hefur ákveðið að færa einkunnir fyrir erlendar- og innlendar
skuldbindingar ríkissjóð af athugunarlista með neikvæðum horfum.  Matshorfurnar
verða hins vegar áfram neikvæðar og endurspegla hættu á að efnahagsbati og
skuldalækkun ríkissjóðs verði ekki sem skyldi. 



Fréttatilkynningu fyrirtækisins má nálgast hér fyrir neðan:

SoP1752011.pdf