2017-03-16 12:49:16 CET

2017-03-16 12:49:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Ársreikningur

Ársreikningur Akureyrarbæjar 2016


Vel viðunandi rekstur án gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga

Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2016 voru lagðir fram í bæjarráði í
dag. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar litaðist mjög af hárri gjaldfærslu vegna
breytinga á lífeyrisskuldbindingum og var samstæða Akureyrarbæjar rekin með 80
milljón króna halla sem er þó ríflega 600 milljónum króna betri árangur en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Sjóðstreymi ársins er betra en síðasta ár,
sérstaklega í A hluta. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum.  Til B–hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að
hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að
stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. 

Samstæða Akureyrarbæjar var rekin með 80 milljón króna halla þegar tekið hefur
verið tillit til ríflega 1.242 milljón króna gjaldfærslu vegna
lífeyrisskuldbindinga á árinu. Gjaldfærslan setur verulegan svip á niðurstöður
ársreikningsins.  Stafar hún m.a. af verulegri hækkun á vísitölu
lífeyrisskuldbindinga opinberra starfsmanna, tekin er inn ný lífslíkatafla og
lágri ávöxtun eigna lífeyrissjóða á síðasta ári. Rekstur samstæðu
Akureyrarbæjar var að öðru leyti nokkuð viðunandi og rekstrarniðurstaða ársins
í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.    Rekstrarniðurstaða
samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 755 milljónir
króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 754 milljóna króna rekstrarafgangi.
Heildarniðurstaða var þó verulega betri en áætlanir gerðu ráð fyrir þrátt fyrir
80 millj. kr  neikvæða niðurstöðu en áætlun gerði ráð fyrir 687 millj. kr
neikvæðri niðurstöðu.  Meginskýring á þessum mun er lægri fjármagnskostnaður
samstæðunnar en áætlun ársins gerði ráð fyrir. 

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 2.639 millj. kr. sem
er 1.284 millj. kr. meira en áætlun hafði gert ráð fyrir og 370 millj. kr.
hærri upphæð en árið áður. Handbært fé frá rekstri nam 2.212 millj. kr.
Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 2.340 millj. kr.
Fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó 704 millj. kr. Afborgun langtímalána
nam 959 millj. kr. en ný langtímalán voru 245 millj. kr. Lækkun á handbæru fé á
árinu nam 832 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 2.678
millj. kr.  Veltufé frá rekstri í hlutfalli við tekjur nam 11,7% í samstæðunni
og 8,5% í A hluta. 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda og hækkun  lífeyrisskuldbindinga
hjá samstæðunni voru 9.868 millj. króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali
1.522 sem er fækkun um 3 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 60,4%. Annar
rekstrarkostnaður var 29,5% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins
voru 695 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.219 þús. kr. á hvern íbúa.
Árið 2015 voru skatttekjurnar 644 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar
1.130 þús. kr. á hvern íbúa. 

Niðurstaða A-hluta var neikvæð um 340 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir neikvæðri niðurstöðu um 629 millj. kr. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga
nam 1.140 millj. kr í A hluta sem er 840 millj. kr   umfram áætlun. Á móti kom
að lítil verðbólga og hagstæð gengisþróun urðu til þess að fjármagskostnaður
var mun lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. 

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2016 bókfærðar
á 42.488 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 5.367 millj. kr. Skuldir
sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi
23.910 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 3.398 millj. kr. Fjárhagur
Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið í árslok samkvæmt reglum
Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga 87% en var 94% árið áður. 

Veltufjárhlutfallið var 1,58 í árslok 2016 eins og árið áður. Bókfært eigið fé
nam 18.578 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall var 44% af heildarfjármagni
eins og árið áður. 

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í
sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 21. mars
og 4. apríl nk. 





Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma
460 1000.