|
|||
![]() |
|||
2017-03-16 13:38:18 CET 2017-03-16 13:38:18 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumBreyting á framkvæmdastjórn og breyting á skipuriti Íbúðalánassjóðs.Sigurður Jón Björnsson, framkvæmdastjóri fjárstýringarsviðs Íbúðalánasjóðs, hefur ákveðið að láta af störfum, frá og með 1. apríl næstkomandi.Unnur Míla Þorgeirsdóttir, sjóðsstjóri, tekur við starfinu tímabundið. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur ákveðið að gera breytingu á skipuriti sjóðsins. Breytingin felst í því að stofnað verður nýtt svið, svið húsnæðismála, sem mun koma til með að fara með þau verkefni sem snúa að stofnframlögum og stefnumótun og rannsóknum á sviði húsnæðismála. Undirbúningur vegna þessara breytinga er þegar hafinn. |
|||
|