|
|||
2011-03-23 18:09:00 CET 2011-09-01 13:44:28 CEST REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins LFEST1 vegna ársins 2010Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010. Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi. Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit KPMG ehf. að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2010, efnahagi hans 31. desember 2010 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2010, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Eigið fé Stefnis hf., sem er rekstrarfélag LFEST1, nam 2.214 millj. kr. í lok árs 2010 samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 108% en samkvæmt lögum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Stefnir hf. er dótturfélag Arion banka hf. og er A-hluti ársreiknings félagsins hluti af samstæðureikningi bankans. Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá Stefni hf., Borgartúni 19, Reykjavík. Nánari upplýsingar um ársreikning LFEST1 veitir Þorkell Magnússon sjóðstjóri, í síma 444 7472. |
|||
|