2016-06-24 11:22:36 CEST

2016-06-24 11:22:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða úr víxlaútboði OR


Reykjavík, 2016-06-24 11:21 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Útboð á nýjum víxlum
útgefnum af Orkuveitu Reykjavíkur fór fram 23. júní 2016 í umsjón
fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðnir voru víxlar til 9 mánaða fyrir allt
að 3 milljarða kr. í nýjum flokki, OR300317. Tilboð bárust fyrir 2.190
milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 6,85-7,74% p.a. 

Orkuveita Reykjavíkur hefur ákveðið, með fyrirvara um staðfestingu stjórnar, að
taka tilboðum að fjárhæð samtals 1.640.000.000 kr. með flötum vöxtum 7,25% p.a.
og gefa út víxla í nýjum flokki OR300317 sem því nemur. Óskað verður eftir að
víxlarnir verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallar Íslands og verður
þá fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. 


         Nánari upplýsingar veita:
         Brynja Kolbrún Pétursdóttir, forstöðumaður Fjárstýringar og greininga
OR, í síma 516-6100 eða netfanginu brynja.kolbrun.petursdottir@or.is 
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka, í síma 444-7337 eða netfanginu birgir.gudfinnsson@arionbanki.is