|
|||
2015-01-16 13:50:04 CET 2015-01-16 13:51:05 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðsMatsfyrirtækjunum Standard & Poors og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber reglugerð númer 462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð fyrirtækjanna á lánshæfismati sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s varðandi lánshæfi Íslands er ekki staðsettur í ríki Evrópusambandsins þarf fyrirtækið ekki að birta áætlun fyrir árið. Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum. Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra. Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2015 fyrir Ísland sem hér segir: Matsfyrirtæki Dagsetning S&P 16. janúar Fitch 30. janúar S&P 17. júlí Fitch 24. júlí |
|||
|