2021-10-28 14:08:51 CEST

2021-10-28 14:08:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 24 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 27.425.008 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæða II og IV í samþykktum félagsins.

Af framangreindum tilkynningum var ein um nýtingu áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld á árinu 2019 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II í samþykktum félagsins, þ.e. áskrift að 125.000 nýjum hlutum í félaginu og 23 tilkynningar um nýtingu áskriftarréttinda sem voru gefin út og seld á árinu 2017 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins, þ.e. áskrift að 27.300.008 hlutum í félaginu.

Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 27.425.008 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 199.310.390 og því er reiknað meðalgengi 7,2674690.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði II og IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 27.425.008 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.892.769.932 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II mun í kjölfarið vera kr. 78.250.000 að nafnvirði og á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV kr. 129.700.018 að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.