|
|||
2014-07-10 15:43:38 CEST 2014-07-10 15:44:39 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaHlutafjáraukning hjá Eik fasteignafélagi hf.Þann 17. janúar 2014 samþykkti hluthafafundur Eikar fasteignafélags hf. að veita stjórn félagsins tvískipta heimild til að hækka hlutafé þess í tengslum við kaup á EF1 hf. (ákveðnar eignir SMI ehf.) og Landfestum ehf. Á grundvelli heimildar í 4. gr. samþykkta Eikar fasteignafélags hf. leggur stjórn félagsins til að gefa út nýja hluti í félaginu sem afhentir verða Arion banka hf. sem greiðsla fyrir allt hlutafé Landfesta ehf. Í skýrslu stjórnar, vegna hlutafjáraukningarinnar, kemur meðal annars fram að félagið hafi fest kaup á öllu hlutafé EF1 hf. fyrir um 4 m.kr., en heildareignir og skuldir þess félags námu um 15 ma.kr. EF1 hf. hefur síðan þá greitt upp lán að fjárhæð 185 m.kr. og Eik fasteignafélag hf. gengist í ábyrgð fyrir lánum félagsins. Eftir ofangreinda hlutafjáraukningu mun hlutafé Eikar fasteignafélags hf. nema 2.904.432.771 kr., en heildarvirði nýrra hluta sem afhentir verða Arion banka nemur 6,8 ma.kr. samkvæmt kaupsamningi. Á næstu misserum er gert ráð fyrir að Eik muni auka eigið fé sitt um 3 milljarða með útgáfu nýrra hluta, þar sem forgangsréttur hluthafa einskorðast við þá hluthafa sem áttu hlutafé í félaginu þegar sú aukning var samþykkt á hluthafafundi félagsins í janúar 2014. Frekari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. Sími: 861-3027 Netfang: gardar@eik.is |
|||
|