2021-06-22 19:57:50 CEST

2021-06-22 19:57:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Síminn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Síminn hf. - Niðurstaða víxlaútboðs 22. júní 2021


Síminn hf. hefur lokið útboði á 6 mánaða víxlum í nýjum víxlaflokki, SIMINN220107.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 3.780 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.540 m.kr. Víxlarnir voru seldir á 2,75% flötum vöxtum.

Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 29. júní 2021. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag.

Arion banki hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is, s: 444 6910.
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, oskarh@siminn.is.
Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar Símans, helgith@siminn.is.