|
|||
![]() |
|||
2013-08-29 12:07:50 CEST 2013-08-29 12:08:51 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message RARIK ohf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2013Heildarhagnaður RARIK á fyrri hluta ársins var 960 milljónir króna. Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2013 var 1.207 milljónir króna. Rekstrarafkoman var heldur lakari en á fyrri hluta ársins 2012 og hækkuðu rekstrartekjur um 3,9% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 9,1%. Afskriftir hækkuðu í kjölfar endurmats eigna sem skýrir að verulegum hluta til hækkun rekstrargjalda. Regluleg starfsemi fyrirtækisins var að öðru leyti í samræmi við áætlanir. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 425 milljón króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður neikvæðir um 699 milljónir króna. Þessi breyting stafar m.a. af styrkingu krónunnar, en verðbólga var þó hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Boðinn var út skuldabréfaflokkur að upphæð 1.000 milljónir á fyrri hluta ársins og gekk salan mjög vel, ávöxtunarkrafa sem fékkst í útboðinu var 3,09 %. Ekki er gert ráð fyrir frekari fjármögnun á árinu. Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets á rekstur voru jákvæð um 335 milljónir króna. Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 961 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.006 milljónir króna eða um 35% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.995 milljónir eða 36% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.927 milljónir króna samanborið við 1.975 milljón króna á sama tímabili árið 2012. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2013 voru heildareignir RARIK 45.846 milljónir króna og heildarskuldir námu 19.688 milljónum króna. Eigið fé var 26.158 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 57,1%. Horfur í rekstri RARIK á árinu 2013 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma ársins fyrir fjármagnsliði verði í samræmi við áætlanir, en heildarafkoma ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða má búast við að heildarafkoma fyrirtækisins verði jákvæð á árinu. Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Árshlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2013 var samþykktur á fundi stjórnar þann 29. ágúst 2013. |
|||
|