2013-09-05 15:38:13 CEST

2013-09-05 15:39:14 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Kópavogsbær - Ársreikningur

Uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2013


Mun betri afgangur en áætlað var

Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2013. 

Rekstrarafgangur Kópavogsbæjar er jákvæður um 652 milljónir króna, samkvæmt
hálfs árs uppgjöri bæjarins, en áætlað var að hann yrði 63 milljónir króna.
Munurinn skýrist fyrst og fremst af rúmlega 400 milljóna króna gengishagnaði og
um 105 milljóna króna tekjum vegna úthlutunar á byggingarrétti fyrstu sex
mánuði ársins. 

Uppgjörið var kynnt í bæjarráði í morgun og síðan sent Kauphöll Íslands.

Skuldir Kópavogsbæjar hafa lækkað um rúma tvo milljarða frá áramótum að því er
fram kemur í uppgjörinu. Mikil áhersla hefur verið lögð á niðurgreiðslu skulda
undanfarin misseri til að lækka vaxtagjöld og auka svigrúm í rekstrinum.
Skuldahlutfall bæjarins, þ.e.a.s. skuldir á móti tekjum, hefur lækkað úr 206%
um áramótin niður í 197% nú um mitt ár, að gefnum tilteknum forsendum. 

Uppgjörið  er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður hefur
þróast og myndar það grunn að útkomuspá ársins 2013 og fjárhagsáætlun ársins
2014. 



Nánari upplýsingar veitir: Arna Schram, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar.