|
|||
![]() |
|||
2025-03-24 10:36:07 CET 2025-03-24 10:36:07 CET REGULATED INFORMATION Skagi hf. - Boðun hluthafafundarSkagi: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar SkagaAðalfundur Skaga hf. verður haldinn fimmtudaginn 27. mars 2025 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 3, 108 Reykjavík, auk þess sem gefinn er kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Hægt er að skrá sig á skráningarsíðu fundarins: https://www.lumiconnect.com/meeting/skagiagm2025 Framboðsfrestur vegna stjórnar og tilnefningarnefndar Skaga hf. rann út þann 22. mars 2025 kl. 16:00. Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í tilnefninganefnd. Hvað varðar upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn vísast til skýrslu tilnefningarnefndar sem finna má á heimasíðu félagsins á slóðinni: https://skagi.is/hluthafafundir Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þar sem fimm einstaklingar hafa boðið sig fram til aðalstjórnar, tveir til varastjórnar og þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn og tilnefningarnefnd. Önnur fundargögn tengd hluthafafundi má nálgast á vef félagsins: https://skagi.is/hluthafafundir Viðhengi ![]() |
|||
|