2018-10-15 10:38:37 CEST

2018-10-15 10:38:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) keypti í liðinni viku 2.571.203 eigin hluti fyrir kr. 29.362.471 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirKaupgengiKaupverðEigin hlutir VÍS eftir viðskipti
8.10.201815:21  801.401    11,39    9.127.957    8.397.101 
9.10.201810:29  801.401    11,46    9.184.055    9.198.502 
10.10.201815:23  167.000    11,44    1.910.480    9.365.502 
11.10.201809:34  801.401    11,41    9.139.978    10.166.903 
   Samtals29.362.471 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 30. ágúst 2018, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 23. ágúst 2018.

VÍS hefur nú keypt samtals 10.166.903 hluti í félaginu sem samsvarar 38,77% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 113.398.147. VÍS á nú samtals 0,46% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.952.642.307. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 26.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 31. desember 2018. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.