|
||||||||||||||||||||||||
2018-10-15 11:00:00 CEST 2018-10-15 11:00:00 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félagsReglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 41 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 2.070.076 eigin hluti að kaupverði 29.364.028 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. júní 2018. Sjóvá átti 29.605.152 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 31.675.228 eigin hluti eða sem nemur 2,22% af útgefnum hlutum í félaginu. Sjóvá hefur keypt samtals 31.675.228 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,22% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 477.943.824 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 35.620.429 hlutum eða sem nemur 2,50% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 550.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2019, en þó aldrei lengur en til 8. mars 2019, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir: Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, s. 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is
|
||||||||||||||||||||||||
|