2022-08-19 12:12:27 CEST

2022-08-19 12:12:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Lánasjóður sveitarfélaga - Árshlutauppgjör og kynningarfundur


Áætlað er að stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. samþykki árshlutareikning sjóðsins fyrir fyrstu 6 mánuði 2022 á stjórnarfundi, mánudaginn 22. ágúst 2022 og verður hann birtur í kjölfarið.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn þriðjudaginn 23. ágúst kl. 8.30 á skrifstofu sjóðsins, Borgartúni 30, 5. hæð. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Boðið verður upp á nettar veitingar.

Boðið er að sækja fundinn rafrænt í gegnum Teams. Þáttakendur beðnir um að staðfesta þátttöku á fundinum með því að senda tölvupóst á ottar@lanasjodur.is og tiltaka hvort þeir hyggjast mæta á staðfund eða sækja fundinn rafrænt.


Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.