2016-04-24 23:30:24 CEST

2016-04-24 23:30:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

VÍS - tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Stjórn VÍS tók í dag ákvörðun um að halda áfram endurkaupum á eigin hlutum
félagsins. Þetta er fjórða endurkaupaáætlun félagsins sem kynnt er frá því að
aðalfundur 2014 veitti slíka heimild. 

Aðalfundur 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess
efnis að kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum. Stjórn VÍS ákvað
30. apríl 2015 að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að 1.000.000.000 kr. að
markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu 4,88% af útgefnu
hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem aðalfundur hafði
heimilað. Stjórn VÍS hefur því tekið ákvörðun um að halda endurkaupum á eigin
hlutum áfram í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. 

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin nú kveður á um að verði keyptir, eru að
nafnverði kr. 70.000.000 hlutir, en það jafngildir um 3,05% af útgefnu hlutafé
félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 600.000.000.
Heimildin gildir til 12. september 2016. 

Endurkaupin verða gerð af Arctica Finance hf. sem tekur allar
viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð
félaginu. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða
í samræmi við lög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. 

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki
3.794.554 hlutir sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf
félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2016. 

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki nema hæsta verði síðustu óháðu viðskipta
eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum sem kaupin
fara fram, hvort sem hærra er. 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og
í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is