|
|||
2023-03-23 18:00:00 CET 2023-03-23 18:00:02 CET REGULATED INFORMATION Vestmannaeyjabær - Financial Statement ReleaseÁrsreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2022Rekstarafkoma Vestmannaeyjabæjar jákvæð árið 2022 Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2022 verður tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir. Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 8.013 m.kr. og rekstrargjöld 7.453 m.kr. Það er einkum tveir þættir sem skýra neikvæða afkomu A-hlutans í heild: Annars vegar gjaldfærslu vegna lífeyrisskuldbindinga en gert var ráð fyrir og neikvæðri gangvirðisbreytingu af verðbréfasafni Vestmannaeyjabæjar. Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu rúmum 16.211 m.kr. í árslok 2022. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í rúmum 2.458 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 1.280 m.kr. á árinu. Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er skuldastaða Vestmannaeyjabæjar við lánastofnanir mjög góð. Jafnframt eru skuldaviðmið, sem oft er vísað til í umræðu um fjármál sveitarfélaga, lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 18,8% í árslok 2022. Það eru einkum óvissuþættir og illviðráðanlegar forsendur sem skýra frávik frá fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar, svo sem breytingar á lífeyrisskuldbindingu, vaxtaumhverfi og kostnaðarsöm slipptaka Herjólfs, sem ekki var hægt að sjá fyrir. Ársreikningurinn endurspeglar vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins sem er vel í stakk búið að standa undir framtíðaruppbygginu í sveitarfélaginu. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg, vel ígrunduð og framtíðarhorfur samfélagsins bjartar. Attachment |
|||
|