2023-03-23 18:56:47 CET

2023-03-23 18:56:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Félagsbústaðir hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Félagsbústaða 2022


Ársreikningur Félagsbústaða 2022

Stjórn Félagsbústaða hf. samþykkti ársreikning félagsins fyrir árið 2022 á fundi sínum í dag 23. mars.

Hagnaður vegna hækkunar á eignasafni

Hagnaður félagsins á árinu nam 16.456 m.kr. og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði fasteignamats eigna félagsins. Hagnaðurinn verður ekki innleystur nema með eignasölu.

Sjóðstreymi Félagsbústaða sýnir að handbært fé frá rekstri var 1.374 m.kr. samanborið við 1.210 m.kr. árið áður. Afborganir langtíma lána námu 1.303 m.kr. Helstu kennitölur reikningsins eru:

  • Rekstrartekjur ársins námu 5.739 m.kr.
  • Afkoma fyrir matsbreytingu (EBITDA) nam 2.392 m.kr. eða 42,6% af rekstrartekjum
  • Matshækkun fjárfestingareigna á árinu námu 19.959 m.kr.
  • Virði fjárfestingareigna í lok ársins er 148.713 m.kr.
  • Eigið fé í lok tímabilsins er 83.767 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall í lok ársins er 56,1%
  • Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils nema 55.924 m.kr.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða á árinu 2021 námu 5.739 m.kr., er það aukning um 12,0% milli ára sem skýrist af hækkun leiguverðs vegna verðlagsbreytinga og stækkun eignasafnsins. Rekstur og viðhald eigna hækkar um 378 m.kr. eða um 16,2% á milli ára. Rekstrarhagnaðarhlutfall (EBITDA%) er 42,6% samanborið við 44,6% fyrir árið 2021.

Eignasafn og efnahagur

Heildareignir félagsins námu 149.370 m.kr. í lok árs en þær jukust um 18,1% frá ársbyrjun. Fjárfestingareignir jukust um 20,1% eða 24.899 m.kr., fjárfest var fyrir 3.569 m.kr. og matsbreyting nam 21.330 m.kr. Heildarskuldir nema 56.720 m.kr. og hækkuðu um 3.540 m.kr. á árinu. Eigið fé hækkaði um 24,4% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall í lok árs var 56,1% en 53,2% í lok árs 2021.

Skuldabréfaútboð

Félagsbústaðir eru með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands og fylgja þeim reglum sem gilda um skráð félög. Samþykktir félagsins kveða einnig á um fyrirkomulag ýmissa þátta í starfseminni og eru þær aðgengilegar á vefsíðu þess ásamt þeim lögum sem gilda um félagið.

Ekki hafa verið tekin lán á árinu 2022. Félagið hefur fjármagnað fjárfestingar með útgáfu á félagslegum skuldabréfum í skuldabréfaflokknum FB100366 SB. Skuldabréfaflokkurinn er verðtryggður með ársfjórðungslegum jöfnum greiðslum til lokadags þann 10. mars 2066 og hann ber einfalda ábyrgð Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið gefnar út 18.800 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum. Flokkurinn er skráður á Sustainable Bond markaði Nasdaq Iceland.

Þróun eignasafns

Félagsbústaðir keyptu 80 fasteignir á árinu 2022 en áform voru um að fjölga íbúðum um 95. Seldar voru 4 fasteignir, 3 lóðir og 3 bílskúra á árinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri, sigrun@felagsbustadir.is, sími 520 1500

Viðhengi