2008-10-10 12:47:23 CEST

2008-10-10 12:48:23 CEST


Islandic English
Bakkavör Group hf. - Viðskipti stjórnenda

Bakkvör Group hf. - Viðskipti fruminnherja


ELL 182 ehf., félag í eigu Lýðs Guðmundssonar og Ágústs Guðmundssonar, hefur í
dag 10. október 2008 keypt 855.151.478 hluti eða 39,629% eignarhlut í Bakkavör
Group hf. af Exista. Verðið í viðskiptunum er 9,79 krónur á hlut sem er síðasta
dagslokagengi í Bakkavör Group 8. október.  Lýður er stjórnarformaður Bakkavör
Group og Ágúst er stjórnarmaður og forstjóri félagsins. 

Lýður Guðmundsson á ekki hluti í Bakkavör Group. Aðilar fjárhagslega tengdir
Lýði Guðmundssyni eiga samtals 855.166.183 hluti eftir kaupin. 
Ágúst Guðmundsson á ekki hluti í Bakkavör Group. Aðilar fjárhagslega tendir
Ágústi Guðmundssyni eiga samtals 855.151.478 hluti eftir kaupin.